top of page

BLÁSKJÁR      (BLUE EYES)


Eftir Tyrfing Tyrfingsson

 

 

Pabbi er loksins dauður. Systkinin Valter og Ella ætla sér flytja upp úr kjallaranum þar sem þau hafa kúldrast árum saman, en á efri hæðum hússins bjó faðir þeirra og upphaldsbarnið Eiríkur. Þau binda miklar vonir við flutningana því nú ættu draumar þeirra systkina um frægðarferil á sviði skvísubóka og ástarsamband við leigubílstjóra að geta ræst. En fyrst þarf að koma pabba gamla í gröfina og losa sig við uppáhaldsbarnið, helst fyrir fullt og allt. Valter og Ella eru fyrst og fremst Íslendingar sem mala um breytingar og betri tíð og reyna að endurnýta sig eftir undarlegustu leiðum.
 

Bláskjár er íslenskt gamandrama, með súrum keim, og fjallar um einlæga löngun tveggja systkina í Kópavogi (skammt frá Hamraborg) til að endurnýta sig og byrja lífið upp á nýtt. Reyndar fjallar það um sitthvað fleira, til dæmis feðraveldið, grimmdina, ofbeldið og veikburða getu okkar til þess að segja hvert öðru satt – og svo auðvitað Bláskjá og sígaunana.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tyrfingur Tyrfingsson (f. 1987) hefur fengist við leiklist svo lengi sem hann man eftir sér og hefur þar til 2012  fyrst og fremst einbeitt sér að performans listum. Hann nam „fræði og framkvæmd“ við leiklistardeild Listaháskóla Íslands og lauk þaðan BA-prófi vorið 2011, en stundaði síðan nám í leikritun við Goldsmiths, University of London. Á síðasta leikári sýndi Borgarleikhúsið leikrit Tyrfings, Skúrinn á sléttunni, einn þriggja einþáttunga ungra leikskálda í sýningunni NÚNA! Fyrir verk sín hlaut Tyrfingur tvöfalda tilnefningu til Grímunnar, íslensku sviðlistaverðlaunanna vorið 2013. Bláskjár er fyrsta leikrit hans í fullri lengd. 

 

Bláskjár var frumsýndur á Litla sviði Borgarleikhússins 8. febrúar 2014.  Sýningin vakti mikla athygli og hlaut einróma lof gagnrýnenda og áhorfenda.  

Bláskjár fékk þrjár tilnefningar til Grímunnar, Leikstjóri ársins, Leikskáld ársins og Sproti ársins.  Tyrfingur fór himinlifandi heim með síðastnefndu verðlaunin.

 

Höfundur: Tyrfingur Tyrfingsson

Leikstjóri: Vignir Rafn Valþórsson

Leikarar: Arndís Hrönn Egilsdóttir, Arnmundur Ernst B. Björnsson og Hjörtur Jóhann Jónsson

Leikmynd: Brynja Björnsdóttir

Búningar: Brynja Björnsdóttir

Lýsing: Garðar Borgþórsson

Hljóð: Garðar Borgþórsson

Tónlist: Högni Egilsson

Aðstoðarleikstjóri: Pétur Ármannsson

Aðstoðarkona leikstjóra: Viktoría Blöndal

bottom of page