top of page

Big Title

 

Illska


Byggð á bók Eiríks Arnar Norðdahl

 

Agnes er ástfangin af Ómari sem er ástfanginn af Agnesi sem er ástfangin af Arnóri

sem er ísfirskur nýnasisti.  Illska er ástarsaga úr Íslandi nútímans. Hárbeitt ádeila á stefnur og strauma í

íslensku þjóðfélagi og veltir upp spurningum sem erfitt er að spyrja, og enn erfiðara að svara.

 

Getum við setið hjá á meðan heimurinn breytist? Verðum við að gæta bræðra okkar

og systra? Erum við að sofna aá verðinum? Hvað verður um þrjú hundruð þúsund

manna þjóð ef landamærin opnast og við dembum okkur á bólakaf í fjölmenningar-

þjóðfélag 21. aldarinnar? Lifir íslensk menning, þjóð og tunga það af?

 

°°°

 

Höfundur Illsku, Eiríkur Örn Norðdahl (1978), er einn framsæknasti höfundur

sinnar kynslóðar og hefur vakið mikla athygli fyrir verk sín, bæði ljóð og skáldsögur.

Illska hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2012 og bóksalar kusu hana bestu skáldsögu ársins. Einnig fékk hún tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandanna 2013.

°°°

 

Höfundur: Óskabörn ógæfunnar & Eiríkur Örn Norðdahl

Leikstjóri: Vignir Rafn Valþórsson

Leikarar: Hannes Óli Ágústsson, Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson

Aðstoðarleikstjóri: Pétur Ármannsson

Leikmynd: Brynja Björnsdóttir

Búningar: Jör - Guðmundur Jörundsson

Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústsson

Vídeó: Frosti Jón Runólfsson
Hljóðmynd: Garðar Borgþórsson

Danshöfundur: Brogan Davison

bottom of page